Úff

Ég sem taldi mig alltaf eiga aldraða foreldra, bæði skriðin yfir þrítugt þegar ég fæddist. 


mbl.is Sjötug og alsæl með tvíburana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stælar

Gat kallinn ekki beðið með að kveikja sér í sígarettu rétt á meðan fundurinn stóð yfir? Mér hefur svo sem aldrei fundist hann spes, nema þegar hann kom fram í einum Friends þætti.
mbl.is „Listin snýst um ástina“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrollur

Manni verður óglatt bara af því að heyra nafnið hans eða sjá það skrifað.
mbl.is Fritzl: „Vissi að þetta var rangt af mér“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jahá

Mikið rosalega er ég fegin að vera ekki konan hans, eða einhvers annars sem lætur svona.

Ég ætla frekar að halda áfram að nota mikið af ilmvatni, ganga í buxum og eyða peningum annarra.


mbl.is Kutcher er illa við skartgripi og ilmvötn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðilegt sumar

Jæja nú er komið vor

Dómarinn bara orðinn of gamall

Ef þessi maður á erfitt með að halda þræði í bókunum þá liggur vandamálið hans megin. Að vísu er mikið af persónum sem koma bara fyrir einu sinni og gerir ekkert til þó maður muni ekki eftir þeim. Getur verið að einhverjir fleiri séu svona tregir, þá er bara hægt að horfa á myndirnar. En ef þetta er brot á höfundarrétti þá skil ég að Rowling vilji að bókin verði skrifuð upp á nýtt og betur unnin.


mbl.is Potter of flókinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki horfa á mig

Ég á engan (eða mjög lítinn) þátt í þessari svifryksmengun í dag þar sem ég lét skipta um dekk fyirir 3 vikum síðan og hef nánast ekkert verið á ferðinni í dag. Ég var reyndar ekki að hugsa um svifrykið sérstaklega þegar ég skipti heldur um naglana sjálfa.

En svifryk er slæmt! 


mbl.is Svifryk yfir mörkum í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undralyf

Það væri nú frábært ef hægt væri að finna upp lyf sem læknaði þennan sjúkdóm. Ég á samt bágt með að trúa að það taki fimm mínútur hjá einstaklingi sem er langt genginn með sjúkdóminn. En hver veit?

 


mbl.is Lyf gegn Alzheimer?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Feit rotta

Rotturnar í stokkhólmi eru greinilega ekki illa haldnar.

Ég get nú ekki annað en fundið til með rottunni (veit að ég er skrítin). 


mbl.is Rafmagn fór af er rotta fékk raflost
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bensínfrelsi

Jæja lét verða af því og fyllti bílinn (af bensíni). Fór samt ekki á N1 heldur á Orkustöð þar sem bensínið kostaði um 126 kr með bensínfrelsi. Nú er bara að reyna að láta þetta endast og nota ekki bílinn að óþörfu og vera ekkert að þvælast þar sem vörubílstjórar eru á ferð.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband